LEXIA orðabókin
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

geð no hk
 
framburður
 beyging
 skaphöfn, skap
  
 blanda geði við <hana>
 
 eiga samskipti við hana, tala við hana
 gera <honum> gramt í geði
 
 gera hann reiðan, pirraðan
 gera <honum> til geðs
 
 þóknast honum
 ég vil ekki gera henni það til geðs að viðurkenna mistök mín
 hafa ekki geð í sér til að <biðja hana um hjálp>
 
 geta ekki fengið sig til þess ...
 <honum> er þvert um geð að <samþykkja þetta>
 
 hann er mótfallinn því að ...
 <mér> fellur <þetta> vel í geð
 
 mér líkar þetta ágætlega
 <taka verkefnið að sér> með glöðu geði
 
 ... fúslega, með ánægju
 <segja þetta> upp í opið geðið á <honum>
 
 segja þetta við hann beint út, án þess að fegra það
Athugið að orðabókin er enn í vinnslu og að sum orðin hafa ekki enn verið þýdd
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík
© Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum