LEXIA orðabókin
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

ljúka so info
 
framburður
 beyging
 fallstjórn: þágufall
 1
 
 leggja lokahönd á (e-ð), vinna (verk) til enda
 ég lauk uppþvottinum á fimm mínútum
 hún hefur lokið prófi í lögfræði
 ljúka við <ritgerðina>
 
 við lukum við að planta blómunum
 2
 
 subjekt: þágufall
 vera búinn, hætta, enda
 skólanum lýkur í júní
 fótboltaleiknum lauk með jafntefli
 ráðstefnunni er lokið
 3
 
 gamalt
 ljúka upp
 
 opna (e-ð)
 hann lauk upp herberginu
 4
 
 áður en yfir lýkur
 
 áður en allt er búið, endirinn kominn
 meira fé mun safnast áður en yfir lýkur
 áður en yfir lauk höfðu tíu verið handteknir
 þar til yfir lýkur
 
 þar til allt er búið
 við ætlum að berjast þar til yfir lýkur
 ljúkast, v
 lokinn, adj
Athugið að orðabókin er enn í vinnslu og að sum orðin hafa ekki enn verið þýdd
© Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík
© Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum